Málþing Listfræðafélagsins í Listasafni Íslands 17. mars.
Myndlistarrannsóknir á skilum fræða og myndlistar
Málþingið í Listasafni Íslands var fyrsti viðburður sem hið nýstofnaða félag
efndi til. Listasafn Íslands hýsti samkomuna og áætlað er að um eitt hundrað
manns hafi sótt þingið. Formaður félagsins, Aðalheiður L. Guðmundsdóttir,
flutti ávarp í upphafi og kynnti félagið. Málþingið var það fyrsta í röð
málþinga sem félagið stendur fyrir á næstu vikum. Fimm frummælendur voru með
erindi.
Dr. Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, sagði frá
doktorsverkefni sínu sem hann varði frá Sorbonne háskóla í París, sem fjallaði
um vídeólistakonuna Steinunni Vasulka og samstarf hennar við Woody Vasulka
(öðru nafni Tímóteus Pétursson). Halldór rekur í ritgerðinni ýmis líkindi milli
verka Vasulka hjónanna og hugmynda franska heimspekingsins Jacques Derrida.
Auður A. Ólafsdóttir, lektor í listfræði við Háskóla Íslands, sagði frá
listfræðináminu sem þar er í boði, og samstarfi við Listaháskóla Íslands,
tilurð þess, skipulag og hugmyndafræðina á bak við námið.
Hlynur Helgason, myndlistarmaður er að vinna að doktorsritgerð í listheimspeki
og hann ræddi tengslin og samlíkinguna milli myndlistar og fagurfræði, en
hugmyndir sínar byggir hann á verkum franska heimspekingsins Gilles Deleuze.
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands, gaf dæmi um
rannsóknir í listfræði, og hvernig nýjar uppgötvanir leynast víða. Nefndi hún
sem dæmi rannsóknir sínar á predikunarstól úr Bræðratungu, og tveimur
altaristöflum sem leiddi hana á óvæntar brautir.
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, mannfræðingur og forstöðukona rannsóknarþjónustu
Listaháskóla Íslands, kynnti þá þróun sem orðið hefði í listrannsóknum innan
evrópskra háskóla, og hvernig listrannsóknir sem myndlistarmenn stunda greina
sig að frá listfræðarannsóknum sem fræðimenn stunda.
Hér með er áberandi að vefur Listfræðifélags Íslands er kominn upp.