Málþing í Listasafni Íslands vel sótt

| 0 Comments | 0 TrackBacks

Málþing Listfræðafélagsins í Listasafni Íslands 17. mars.
Myndlistarrannsóknir á skilum fræða og myndlistar

Málþingið í Listasafni Íslands var fyrsti viðburður sem hið nýstofnaða félag efndi til. Listasafn Íslands hýsti samkomuna og áætlað er að um eitt hundrað manns hafi sótt þingið. Formaður félagsins, Aðalheiður L. Guðmundsdóttir, flutti ávarp í upphafi og kynnti félagið. Málþingið var það fyrsta í röð málþinga sem félagið stendur fyrir á næstu vikum. Fimm frummælendur voru með erindi.
Dr. Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, sagði frá doktorsverkefni sínu sem hann varði frá Sorbonne háskóla í París, sem fjallaði um vídeólistakonuna Steinunni Vasulka og samstarf hennar við Woody Vasulka (öðru nafni Tímóteus Pétursson). Halldór rekur í ritgerðinni ýmis líkindi milli verka Vasulka hjónanna og hugmynda franska heimspekingsins Jacques Derrida.
Auður A. Ólafsdóttir, lektor í listfræði við Háskóla Íslands, sagði frá listfræðináminu sem þar er í boði, og samstarfi við Listaháskóla Íslands, tilurð þess, skipulag og hugmyndafræðina á bak við námið.
Hlynur Helgason, myndlistarmaður er að vinna að doktorsritgerð í listheimspeki og hann ræddi tengslin og samlíkinguna milli myndlistar og fagurfræði, en hugmyndir sínar byggir hann á verkum franska heimspekingsins Gilles Deleuze.
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur á Þjóðminjasafni Íslands, gaf dæmi um rannsóknir í listfræði, og hvernig nýjar uppgötvanir leynast víða. Nefndi hún sem dæmi rannsóknir sínar á predikunarstól úr Bræðratungu, og tveimur altaristöflum sem leiddi hana á óvæntar brautir.
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, mannfræðingur og forstöðukona rannsóknarþjónustu Listaháskóla Íslands, kynnti þá þróun sem orðið hefði í listrannsóknum innan evrópskra háskóla, og hvernig listrannsóknir sem myndlistarmenn stunda greina sig að frá listfræðarannsóknum sem fræðimenn stunda.

No TrackBacks

TrackBack URL: http://listfraedi.is/cgi-bin/mt/mt-tb.cgi/6

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Gunnar J. Árnason published on March 30, 2010 9:29 AM.

Listfræðivefurinn kominn upp was the previous entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.