by Hlynur Helgason | feb 13, 2017 | Félagsfundir, Fréttir
Við minnum á mánaðarlegan viðburð, samsæti Listfræðafélagsins, sem verður næstkomandi miðvikudag, 15. febrúar á Jakobsen Lofti í Austurstræti kl. 5 e.h. Gleðistund stendur yfir frá 5 til 7 þannig að fólk getur setið og rætt saman yfir léttum veitingum. Við reiknum með því að fjöldi félagsmanna þyrsti í að hittast og ræða helstu tíðindi líðandi stundar.
by Hlynur Helgason | jan 16, 2017 | Félagsfundir, Fréttir
Fyrsti félagsfundur og samsæti Listfræðafélagsins á nýju ári verður næstkomandi miðvikudag, 18. janúar á Jakobsen Lofti í Austurstræti kl. 5 e.h. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir félaga að hittast og ræða í góðum félagsskap þá möguleika og áskoranir sem blasa við faginu á nýju ári.
Á dagskrá verður inntaka nýs félaga og önnur mál. Að því loknu verður haldið samsæti þar sem stefnt er að léttu spjalli um þau málefni sem helst brenna á félagsmönnum.
by Hlynur Helgason | okt 17, 2016 | Félagsfundir, Fréttir
Við viljum minna á félagsfund og samsæti Listfræðafélagsins sem jafnframt næstkomandi miðvikudag, 19. október á Jakobsen Lofti í Austurstræti kl. 5 e.h.
Á dagskrá verður inntaka nýs félaga og önnur mál. Að því loknu verður haldið samsæti þar sem stefnt er að léttu spjalli um stefnuna í málefnum félagsins.
by Hlynur Helgason | sep 19, 2016 | Félagsfundir, Fréttir
Við viljum minna á að fyrsti félagsfundur Listfræðafélagsins í haust sem jafnframt er samsæti verður miðvikudaginn 21. september á Jakobsen Lofti í Austurstræti kl. 5 e.h.
Á dagskrá verður inntaka nýrra félaga og önnur mál. Að því loknu verður haldið samsæti þar sem stefnt er að léttu spjalli um stefnuna í málefnum félagsins.
by Hlynur Helgason | sep 7, 2016 | Fréttir
Nú er að hefjast vetrarstarf Listfræðafélagsins. Fyrsti viðburðinn er Spegill tímans, fyrirlestur Aðalheiðar Valgeirsdóttur og Aldísar Arnardóttur sem fram fer í Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag miðvikudaginn 7. september frá 12 til 13. Fyrirlesturinn er fyrsti fyrirlesturinn í nýrri fyrirlestraröð Listfræðafélagins í Safnahúsinu. Röðin ber yfirheitið STEFNUMÓT og í henni er áhersla lögð á sýningar sem félagar Listfræðafélagins hafa staðið fyrir á undanförnum árum og eiga það sameiginlegt að stefna saman listamönnum af ólíkum kynslóðum.
Við skorum á félagsmenn að mæta til að kynnast akoðun þeirra Aðalheiðar og Aldísar á verkum Karls Kvaran í samspili við samtímamálverk Erlu Þórarinsdóttur.
Næst á dagskrá hjá félaginu verður félagsfundur þann 21. september sem stefnt er að að eigi sér stað á Jakobsen Lofti í Austurstræti. Þar verður tekin fyrir umsókn þriggja aðila um félagsaðild en eftir það fara fram óformlegar umræður á milli félagsmanna um störf þeirra á listfræðavettvangi og möguleika í framtíðarstarfi félagsins.