Listasafn Íslands og Listfræðafélag Íslands efna til málþings um myndlistargagnrýni föstudaginn 17. mars.
Listasafn Íslands og Listfræðafélag Íslands efna til málþings um myndlistargagnrýni í tilefni af yfirlitssýningu í Listasafni Íslands á verkum Valtýs Péturssonar (1919–1988), listmálara og myndlistargagnrýnanda. Valtýr var myndlistargagnrýnandi Morgunblaðsins frá 1952 til dauðadags árið 1988 og skrifaði á þeim tíma gagnrýni um 840 sýningar auk 60 greina um ýmis efni sem tengjast myndlist. Einnig birtust fjölmörg viðtöl við Valtý í hinum ýmsu fjölmiðlum og er yfirskrift málþingsins sótt í viðtal við hann í Tímanum þann 27. mars, 1986.
Á þeim tíma sem liðinn er síðan Valtýr skrifaði myndlistargagnrýni hefur margt breyst á sviði myndlistar og umfjöllunar um myndlist hér á landi. Listumhverfið hefur eflst og fjölmiðlaumhverfið hefur gjörbreyst, ekki síst með tilkomu netmiðla.
Þegar litið er yfir sviðið í dag vakna ýmsar spurningar, meðal annars:
- Hvernig var staðan þá og hvernig er hún í dag?
- Hver hefur hugrekki til að skrifa listgagnrýni í dag?
- Um hvað snýst myndlistargagnrýni hér á landi, hvert er hlutverk hennar, hvar fer hún fram, hver markar stefnuna, hver er markhópurinn?
- Þarf að bæta og efla myndlistargagnrýni í íslenskum fjölmiðlum? Á hvaða hátt og hvernig?
Á málþinginu verður leitað svara við þessum spurningum og öðrum sem kunna að vakna.
Fundarstjóri: Dagný Heiðdal
DAGSKRÁ
12.00–12.20
Jón B.K. Ransu: Valtýr Pétursson og myndlistargagnrýni.
12.20–12.35
Aðalsteinn Ingólfsson: Reynsla listgagnrýnandans við lok 20. aldar og upphaf 21.aldar.
12.35–12.50
Magnús Gestsson: Gagnrýni og sölugallerí fyrir myndlist: Litið til nokkurra nágrannalanda.
12.50–13.00
Helga Óskarsdóttir: Netið – vettvangur fyrir myndlistargagnrýni. Reynsla grasrótarinnar.
13.00 –13.10
Einar Falur Ingólfsson: Morgunblaðið og myndlistargagnrýni. Stefnumörkun og markhópur.
13.10–13.20
Magnús Guðmundsson: 365 miðlar og umfjöllun um menningu og myndlist. Stefnumörkun og markhópur.
13.20–13.30
Þröstur Helgason: Menningarumfjöllun RÚV. Myndlist í útvarpi og sjónvarpi.
13.30–14.00
Umræður