SÝNINGARSTJÓRNUN - LIST EÐA FRÆÐI?

| 0 Comments | 0 TrackBacks
Málþing í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, miðvikudaginn 14. apríl kl. 17.00 til 19.00

Á þriðja málþingi Listfræðafélagsins á vormánuðum verður áhersla lögð á sýningarstjórnun. Frummælendur munu varpa ljósi á ýmsar hliðar þess starfs og velta fyrir sér mörkum listar og fræða, túlkunar og miðlunar sem í því felast. Rætt verður um breytingar sem orðið hafa á hlutverki sýningarstjóra, mismunandi starfsvettvang og nálganir. Sérstaklega verður gætt að sýningarstjórn í íslensku samhengi, væntingum, þörfum og möguleikum þessa vettvangs, en líka tekist á við fræðileg viðfangsefni fagsins. Hver er ábyrgð sýningarstjóra gagnvart myndlist og listasögu? Hver er staðan þegar kemur að varðveislu og rannsóknum á íslenskri sýningasögu? Frummælendur munu hver á fætur öðrum halda stutt og skorinort erindi og í kjölfarið verður boðið upp á fyrirspurnir og samræður. Fundarstjóri verður Hanna Styrmisdóttir sýningarstjóri og þingið verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, miðvikudaginn 14. apríl 2010  kl. 17.00 til 19.00. 

Frummælendur: 
Hafþór Yngvason, listfræðingur og forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur 
Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og stjórnarformaður Nýlistasafnsins
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
Ólöf K. Sigurðardóttir, listfræðingur og forstöðumaður Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnafjarðar
Markús Þór Andrésson, sjálfstætt starfandi sýningarstjóri

No TrackBacks

TrackBack URL: http://listfraedi.is/cgi-bin/mt/mt-tb.cgi/7

Leave a comment

May 2010

                     
Su Þr Mi Fi Lau
1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31

About this Entry

This page contains a single entry by Gunnar J. Árnason published on April 14, 2010 2:38 PM.

Túlkun myndlistar á líðandi stund was the previous entry in this blog.

Aðalfundur Listfræðafélags Íslands is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.