Kjarvalsstaðir – Laugardagur, 24. september, kl 13:00 Listfræðingurinn Edda Halldórsdóttir segir frá sambandi Jóhannesar S. Kjarvals við Jón Þorsteinsson íþróttakennara. Edda er langafabarn Jóns og hefur því einstakt sjónarhorn á viðfangsefnið. Jón var mikill velgjörðarmaður Kjarvals og eignaðist stórt safn verka eftir vin sinn. Jón lét Kjarval í té vinnuaðstöðu í íþróttahúsi sínu við Lindargötu 7 í Reykjavík, þar var haldin stór sýning á verkum hans árið 1942 og um tveggja ára skeið bjó Kjarval hjá Jóni og Eyrúnu konu hans. Edda segir frá einstökum verkum í safni langafa síns og hvernig hann byggði upp safn sitt. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við sýningu á verkum Kjarvals í Austursal Kjarvalsstaða, þar sem meðal annars má sjá verk úr safni Jóns Þorsteinssonar. Edda Halldórsdóttir útskrifaðist með MA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún er nú verkefnastjóri hjá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Edda hefur kennt listfræði við Háskóla Íslands, unnið við íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum og sem framkvæmdastjóri Sequences VII.
Nú er að hefjast vetrarstarf Listfræðafélagsins. Fyrsti viðburðinn er Spegill tímans, fyrirlestur Aðalheiðar Valgeirsdóttur og Aldísar Arnardóttur sem fram fer í Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag miðvikudaginn 7. september frá 12 til 13. Fyrirlesturinn er fyrsti fyrirlesturinn í nýrri fyrirlestraröð Listfræðafélagins í Safnahúsinu. Röðin ber yfirheitið STEFNUMÓT og í henni er áhersla lögð á sýningar sem félagar Listfræðafélagins hafa staðið fyrir á undanförnum árum og eiga það sameiginlegt að stefna saman listamönnum af ólíkum kynslóðum.
Við skorum á félagsmenn að mæta til að kynnast akoðun þeirra Aðalheiðar og Aldísar á verkum Karls Kvaran í samspili við samtímamálverk Erlu Þórarinsdóttur.
Næst á dagskrá hjá félaginu verður félagsfundur þann 21. september sem stefnt er að að eigi sér stað á Jakobsen Lofti í Austurstræti. Þar verður tekin fyrir umsókn þriggja aðila um félagsaðild en eftir það fara fram óformlegar umræður á milli félagsmanna um störf þeirra á listfræðavettvangi og möguleika í framtíðarstarfi félagsins.
This website uses cookies to improve your experience. We'll assume you're ok with this, but you can opt-out if you wish. Cookie settingsACCEPT
Privacy & Cookies Policy
Privacy Overview
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are as essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.