Málþing um framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins, 2015: Moskan — fyrsta moskan í Feneyjum
Framlag Íslands til Feneyjatvíærings þessa árs ber heitið MOSKAN – Fyrsta moskan í Feneyjum, eftir Christoph Büchel. Auglýst var eftir tillögum um verk og samstarfsteymi og var verkefni listamannsins valið í því ferli. Skálinn var opnaður almenningi þann 8. maí 2015 í Santa Maria della Misericordia-kirkjunni í Cannaregio-hverfinu í Feneyjum. Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar heldur utanum verkefnið.
Framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins hefur áður vakið mikla athygli á alþjóðlegum vettvangi en sjaldan eins og í ár. Fjallað hefur verið um verkið í fjölmiðlum austan hafs og vestan og hefur það kallað á sterk viðbrögð. Sem kunnugt er var skálanum lokað af borgaryfirvöldum í Feneyjum þann 22. maí, tveimur vikum eftir opnun.
Hefð hefur skapast fyrir því að sýna framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins hér á landi í kjölfar sýningarinnar á Ítalíu. Verkið að þessu sinni býður varla upp á slíka yfirfærslu og því er boðað til málþings þar sem leitast verður við að velta upp sem flestum flötum verksins, íhuga samfélagslega merkingu þess, og viðbrögð við verkinu á breiðum grundvelli.
Sem frummælendur hefur verið leitað til fjögurra einstaklinga, sem munu í erindum sínum varpa fram hugmyndum er spretta upp af vangaveltum um verkið, MOSKAN– Fyrsta moskan í Feneyjum.
Þátttakendur í málþinginu eru:
Hlynur Helgason, myndlistarmaður og listfræðingur
Ólafur Gíslason, listfræðingur
Ragna Sigurðardóttir, myndlistarmaður, rithöfundur og gagnrýnandi
Stefano Rabolli Pansera, arkitekt og borgarfræðingur (urbanist).
Fundarstjóri er Guðni Tómasson, listsagnfræðingur
Dagskrá málþingsins:
Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, setur þingið
Guðni Tómasson kynnir verkið, Moskuna
Hlynur Helgason
Ólafur Gíslason
Ragna Sigurðardóttir
– Hlé –
Stefano Rabolli Pansera
Pallborðsumræður
Almennar umræður
Til málþingsins efna Listasafn Íslands og Listfræðafélag Íslands í samstarfi við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og með stuðningi Sambands íslenskra myndlistarmanna, SÍM. Málþingið verður haldið laugardaginn 5. desember 2015, klukkan 11:00 – 14:30 í Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík og fer fram á íslensku og ensku.