Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (f. 1968) er sjálfstættstarfandi fræðimaður og stundakennari í listfræðum við Listaháskóla Íslands (LHÍ), Háskóla Íslands (HÍ) og Ljósmyndaskólann. Árin 2010–2021 starfaði hún sem lektor og fagstjóri listfræða við myndlistardeild LHÍ. Hún hefur sinnt ýmsum verkefnum á fagsviðum listfræða og myndlistar, þar á meðal rannsóknum, skrifum og sýningargerð. Rannsóknir hennar hafa beinst að samtíma myndlist, bókverkagerð listamanna og að kynjafræðum innan lista. Aðalheiður Lilja lærði heimspeki á Íslandi og listheimspeki í Frakklandi. Hún hefur sinnt ýmsum nefndarstörfum á Íslandi, Frakklandi og á Norðurlöndunum.
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (b. 1968) is an independent researcher and a part-time teacher in art theory and art history at the Iceland University of the Arts (IUA), the University of Iceland (UI), and the School of Photography. In the years 2010–2021, she worked as a lecturer and head of art theory studies at the Fine Arts Department of IUA. She has carried out various projects in the fields of art theory and visual arts, including research, writing and exhibition making. Her research is in the field of contemporary art, artists’ books and gender studies in the arts. Aðalheiður Lilja studied philosophy in Iceland and philosophy of art in France. She has held board and committee roles in the fields of art history and art theory in Iceland, France and the Nordic countries.