Aðalheiður Valgeirsdóttir
Aðalheiður Valgeirsdóttir (f. 1958) er myndlistarmaður, sjálfstætt starfandi listfræðingur og sýningarstjóri. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1982 og hefur unnið að myndlist síðan. Hún lauk BA og MA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt margvíslegum verkefnum á sviði listfræði og myndlistar, sem kennari og greinahöfundur og verið sýningarstjóri í söfnum og galleríum. Aðalheiður er félagi í SÍM, FÍM, félaginu Íslensk grafík, Nýlistasafninu og Listfræðafélagi Íslands, og hefur átt sæti í stjórnum, mats-og dómnefndum á sviði myndlistar. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis.