Anna Jóhannsdóttir
Anna Jóhannsdóttir (f. 1969) lauk meistaraprófi í myndlist við EnsAD í París árið 1996 og í listfræði við Háskóla Íslands árið 2014. Hún starfar sem sérfræðingur á Listasafni Íslands. Einnig hefur hún um árabil unnið sjálfstætt sem listamaður og fræðimaður, sýningarstjóri, listgagnrýnandi og kennari á sviði listfræði og listasögu. Anna var meðstofnandi og umsjónarmaður listamannarekins sýningarrýmis fyrir samtímamyndlist, Gallerís Skugga, Hverfisgötu 39, sem starfaði á árunum 2001-2005. Hún hefur unnið sem sýningarstjóri, m.a. á Listasafni Árnesinga, Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands. Kennsluferill hennar sem stundakennari á háskólastigi, við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, hófst árið 2008 en hún hefur auk þess kennt íslenska og alþjóðlega listasögu á framhaldsskólastigi auk kvöldnámskeiða fyrir almenning, m.a. hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík og Endurmenntun HÍ. Anna hefur birt lengri og skemmri greinar á íslensku og ensku um myndlist í dagblöðum, tímaritum, sýningarskrám og bókum. Hún hóf störf sem myndlistargagnrýnandi og pistlahöfundur við Morgunblaðið árið 2006 og alls teljast birtir dómar, pistlar og greinar eftir hana í blaðinu á fjórða hundrað. Helsta rannsóknarsvið hennar sem listfræðings er íslensk nútímalistasaga og hefur hún fjallað um ýmis svið hennar, en lagt áherslu á landslags- og náttúrutengda myndlist. Anna hefur átt sæti í ýmsum nefndum og ráðum, má þar nefna úthlutunarnefnd Launasjóðs myndlistarmanna, innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur og sem varaformaður í Myndlistarráði 2022-2025.
Anna Jóhannsdóttir (b. 1969) completed her master's degree in fine arts at EnsAD in Paris in 1996 and in art history and art theory at the University of Iceland in 2014. She is currently employed as a specialist at the National Gallery of Iceland. She has also worked independently as a visual artist and scholar, curator, art critic, and teacher in the field of art history and art theory. Anna was the co-founder and curator of the artist-run exhibition space for contemporary art, Gallery Skuggi, which operated from 2001 to 2005. She has worked as a curator at the LÁ Art Museum, the Reykjavík Art Museum and the National Gallery of Iceland. Anna has taught part-time at the University of Iceland and the Iceland University of the Arts since 2008. She has published numerous articles in Icelandic and English about art in newspapers, periodicals, exhibition catalogues and books. She has worked as an art critic and columnist at Morgunblaðið daily paper with over three hundred published reviews and articles in the newspaper since 2006. Her main field of research is Icelandic art history, with an emphasis on the landscape and nature-related art and modern art. Anna has served on various committees and councils, including the allocation committee of the Artists' Salary Fund, the purchasing committee of the Reykjavík Art Museum and as vice-chairman of the Icelandic Visual Arts Council 2022-2025.