Edda Halldórsdóttir

Edda Halldórsdóttir (f. 1987) er listfræðingur og hefur undanfarin ár starfað hjá Listasafni Reykjavíkur í deild safneignar og rannsókna sem verkefnastjóri skráningar. Hún er Kjarvalssérfræðingur safnsins og hefur rannsakað feril Jóhannesar Kjarvals út frá fjölbreyttum áherslum. Hún hefur sýningarstýrt ýmsum sýningum hjá Listasafni Reykjavíkur, m.a. sýningum í D-sal Hafnarhússins og sýningum á verkum Kjarvals á Kjarvalsstöðum. Áður starfaði hún hjá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar, sem stundakennari í listfræði við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, sem framkvæmdastjóri Sequences-myndlistarhátíðar, auk annarra verkefna á sviði myndlistar og listfræða. Edda situr í stjórn Listfræðafélags Íslands. Edda lauk BA og MA prófi í listfræði frá Háskóla Íslands en tók hluta af náminu í fjarnámi og skiptinámi við Humboldt-háskóla í Berlín.

Edda Halldórsdóttir (b. 1987) is an art historian and has for the last several years worked at the Reykjavík Art Museum in the collections and research department as project manager. She is the museum’s specialist on Kjarval and has studied the career of Jóhannes Kjarval from various perspectives. She has curated several exhibitions at the Reykjavík Art Museum, including exhibitions in Gallery D at Hafnarhús and exhibitions of Kjarval’s works at Kjarvalsstaðir. Previously, she worked at the Icelandic Art Center, as a part-time lecturer in art history at the University of Iceland and the Iceland University of the Arts, as the managing director of the Sequences Art Festival, as well as on other projects in the field of visual arts and art history. Edda serves on the board of the Association of Art Historians and Theorists of Iceland. She completed her BA and MA degrees in art history and art theory at the University of Iceland, but took part of her studies through distance learning and an exchange programme at Humboldt University in Berlin.

Hafa samband // Contact