Gunnar Harðarson
Gunnar Harðarson (f. 1954) er prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann hefur einkum sinnt kennslu á sviði almennrar heimspeki, heimspekisögu og listheimspeki og birt ýmis ritverk, útgáfur og þýðingar á þessum sviðum. Hann lauk maîtrise-prófi í heimspeki (fagurfræði) frá Université Paul Valéry, Montpellier (1979), og doktorsprófi í heimspekisögu (miðaldaheimspeki) frá Université Paris I – Panthéon-Sorbonne (1984).