Heiðar Kári Rannversson
Heiðar Kári Rannversson (f. 1982) er safnstjóri Nýlistasafnsins. Hann var deildarstjóri við Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn 2018-2022 og verkefnastjóri fræðslu og viðburða á Listasafni Reykjavíkur 2013-2016. Hann hefur verið stundakennari við Listaháskóla Íslands frá 2015 og sinnt kennslu við Myndlistaskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Sem listfræðingur og sýningarstjóri hefur Heiðar Kári einkum rannsakað íslenska samtímalist og tengsl hennar við stefnur og strauma alþjóðlegrar myndlistar. Hann hefur m.a. unnið fyrir Listasafn Íslands, Listasafnið á Akureyri, Hafnarborg, Gerðarsafn, Myndhöggvarafélagið í Reykjavík og Myndlistarmiðstöð. Hér má nefna sýningar eins og: Outside looking in, inside looking out, samstarfsverkefni Myndlistarmiðstöðvar og sendiskrifstofa Íslands í New York, Amsterdam, Helsinki, Ósló, París og Tókýó (2023-2025); Hjartadrottning – Sóley Ragnarsdóttur (Gerðarsafn og Augustiana, Danmörku, 2024); Tölur, staðir – Þór Vigfússon (Gerðarsafn og Y Gallery, 2024); Diskótek (Hafnarborg, 2021); FALLVELTI HEIMSINS, fyrsti áfangi í sýningaröðinni HJÓLIÐ (Myndhöggvarafélagið og Listahátíð í Reykjavík, 2018) og NORMIÐ ER NÝ FRAMÚRSTEFNA (Gerðarsafn, 2017). Hann hefur einnig skrifað ítarlega um samtímalist á íslensku, dönsku og ensku, í tímarit á borð við Skírni og Myndlist á Íslandi, sýningarskrár og bækur, t.d. yfirlit um starfsemi gallerís Suðurgötu 7 sem nefnist S7 - Suðurgata >> Árbær (ekki á leið), Nýlistasafnið, 2014. Heiðar Kári hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum, t.d. sat hann í stjórn Listasafns ASÍ 2017-2021 og í innkaupanefnd Listasafns Reykjavíkur 2023-2025. Þá var hann formaður Listfræðafélags Íslands 2023-2024. Hann stundaði nám í Arkitektúr við Konunglegu Akademíuna í Kaupmannahöfn, hlaut BA próf í listfræði við Háskóla Íslands og lauk MA prófi í listrannsóknum frá Háskónanum í Amsterdam 2012.
Heiðar Kári Rannversson (b. 1982) is Director of the Living Art Museum. He was Head of Exhibitions at North Atlantic House in Copenhagen 2018-2022, and Head of Public Programs at Reykjavik Art Museum 2013-2016. He has been a part-time teacher at Iceland University of the Arts since 2015 and has tutored at the Reykjavík School of Visual Arts and University of Iceland. As an art historian and curator, Heiðar Kári has primarily researched contemporary art from Iceland and its connection to trends and currents in international art. He has worked for the National Gallery of Iceland, Akureyri Art Museum, Hafnarborg – Centre of Culture and Fine Art, Gerðarsafn – Kópavogur Art Museum, Reykjavik Association of Sculptors and Icelandic Art Center to name but a few. This includes exhibitions such as: Outside looking in, inside looking out, a collaboration between the Icelandic Art Center and Icelandic Embassies in New York, Amsterdam, Helsinki, Oslo, Paris and Tokyo (2023-2025); Queen of Hearts – Sóley Ragnarsdóttir (Gerðarsafn and Augustiana, Denmark, 2024); Numbers, Places – Þór Vigfússon (Gerðarsafn and Y Gallery, 2024); Discotheque (Hafnarborg, 2021); GONE WITH THE WIND – part of the outdoor art exhibition series THE WHEEL (Reykjavik Association of Sculptors and Reykjavík Arts Festival, 2018), and NORMALITY IS THE NEW AVANT-GARDE (Gerðarsafn, 2017). He has also written extensively on contemporary art, in Icelandic, Danish and English, for scholarly journals and cultural magazines, catalogues, and books; including a survey on the Icelandic artist-run Gallery Suðurgata 7 titled S7 - Suðurgata >> Árbær (ekki á leið) (Living Art Museum, 2014). Rannversson has also held various positions of trust. For instance, he served on the board of the ASÍ Art Musuem 2017-2021 and sat on the acquisitions committee of the Reykjavík Art Museum 2023-2025. In 2023-2024 he was chairman of the Association of Art Historians and Theorists in Iceland. He studied Architecture at the Royal Academy of Copenhagen, received a BA in Art History from the University of Iceland, and completed an MA in Artistic Research from the University of Amsterdam in 2012.