Hólmar Hólm

Hólmar Hólm gegnir nú stöðu verkefnastjóra kynningarmála og útgáfu hjá Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, þar sem hann hefur starfað frá árinu 2016. Í starfi sínu þar hefur hann komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði safna og myndlistar, svo sem sýningarstjórn, ritstörfum og miðlun. Hólmar er menntaður fornfræðingur, með tvöfalda BA-gráðu í latínu og forngrísku frá Háskóla Íslands, sem hefur nýst honum við rannsóknir, skrif og miðlun á sviði lista og menningar. Á undanförnum árum hefur Hólmar jafnframt tekið að sér sýningarstjórn á sviði samtímalistar. Meðal sýningarstjórnarverkefna hans í Hafnarborg eru Hrynjandi (2021), Vísað í náttúru (2022), GILDI (2023), Þú ert hér og Alverund (2025) og Heiðvirðir einstaklingar (2026), auk Frá sögu til samtíðar (sæ. Från saga till samtid, 2025) í Uppsala konstmuseum í samstarfi við Uppsalaborg. Í slíkum verkefnum og skrifum um myndlist hefur hann meðal annars fengist við spurningar um sjálfsmynd, gildi, tungumál, frásagnir og það hvernig við lesum og miðlum myndlist og menningu. Hólmar hefur einnig setið í ritstjórn Myndlistar á Íslandi síðan haustið 2021 og skrifað og ritstýrt textum og útgáfum um myndlist og sýningar, auk þess að sinna þýðingum og öðrum miðlunarverkefnum fyrir söfn, menningarstofnanir og listafólk, hér á landi og erlendis. Einkum má nefna aðkomu hans að Sjónarafli – þjálfun í myndlæsi við Listasafn Íslands, sem einn höfunda fræðsluverkefnisins og samnefndrar bókar sem kom út árið 2023. Nýlega skrifaði Hólmar grein um listsköpun James Merrys fyrir útgáfu Listasafns Íslands í tengslum við sýningu hans og Bjarkar árið 2026. Hólmar er jafnframt formaður Íslandsdeildar ICOM, Alþjóðaráðs safna, og hefur á þeim vettvangi tekið virkan þátt í faglegu samstarfi safnafólks hérlendis og á alþjóðavettvangi.

Hafa samband // Contact