Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir (f. 1993) lauk BA- og MA-gráðum í listfræði frá Háskóla Íslands en sinnir nú doktorsnámi á Menntavísindasviði HÍ. Hún gegnir aðjúnktsstöðu við Deild Menntunar og margbreytileika við HÍ, auk þess að sinna stundakennslu við aðrar deildir og háskóla. Inga Björk vinnur þverfaglega á mörkum lista, tækni og mannréttinda og hefur starfað sem fyrirlesari og ráðgjafi um árabil, m.a. um inngildingu, vald og jaðarsetningu. Inga Björk var einn stofnenda Plan-B Art Festival sem starfaði í Borgarfirði á árunum 2016–2021, og var þar skipuleggjandi og sýningarstjóri. Hún hefur einnig sinnt myndlistargagnrýni og menningarumfjöllun í Lestinni og Víðsjá á Rás 1, unnið með List án Landamæra, auk þess að sinna sýningarstjórnun og textaskrifum.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir (b. 1993) completed her BA and MA degrees in Art Theory from the University of Iceland and is currently pursuing a PhD at the School of Education, University of Iceland. She holds an adjunct position at the Faculty of Education and Diversity at UI, in addition to teaching part-time at other faculties and universities. Inga Björk works interdisciplinary at the boundaries of art, technology and human rights and has worked as a lecturer and consultant for years, including on issues of inclusion, power and marginalisation. Inga Björk was one of the founders of the Plan-B Art Festival, held in Borgarfjörður from 2016 to 2021, and served as an organiser and curator. She also produced art criticism and cultural coverage for Lestin and Víðsjá, radio shows at Rás 1, curated exhibitions with List án Landamæra (Art Without Borders), and worked as an independent curator and writer.