Laufey Helgadóttir

Laufey Helgadóttir (f. 1951) er sjálfstætt starfandi listfræðingur og leiðsögumaður búsett í París. Á árunum 1974-1981 stundaði hún nám við Sorbonne háskóla í París sem lauk með master gráðu í arts plastiques og gráðu í listasögu, D.E.A. (Diplôme d’études approfondies). Lokaverkefni ritgerðarinnar í listasögunni var SÚM hópurinn á Íslandi. Frá árinu 1982 hefur hún skrifað greinar um myndlist í dagblöð og tímarit, tekið viðtöl og skrifað texta fyrir sýningarskrár. Á árunum 1987-1995 var hún einn af ritstjórum norræna listtímaritsins Siksi. Hún hefur einnig unnið við að skipuleggja sýningar og var t.d. sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum árin 2003 og 2005. Laufey hefur sérhæft sig í list sjöunda og áttunda áratugarins á Íslandi og var einn af höfundum íslensku listasögunnar, sem kom út árið 2011 (IV bindi). Einnig hefur Laufey tekið þátt í ljósmyndasýningum með eigin ljósmyndaverk eins og t.d. á sýningunni Augnablik í Nýlistasafninu 1985 og sýningunni, Þættir úr sögu ljósmyndunar á Íslandi 1970-1990, árið 2012 í Þjóðminjasafni Íslands. Samhliða starfi listfræðingsins hefur Laufey sinnt leiðsögustarfi allt frá 1972, bæði á Íslandi og í Frakklandi. Á árunum 2012-2024 hefur Laufey ásamt eiginmanni sínum, Bernard Ropa arkitekt verið með sýningar á verkum íslenskra listamanna í einkaíbúð þeirra hjóna, á 25. hæð byggingar í 19. hverfi Parísar.

Laufey Helgadóttir (1951) is an independent art historian based in Paris. From 1974 to 1981, she studied at the Sorbonne University in Paris, graduating with a master's degree in visual arts and a degree in art history, D.E.A. (Diplôme d’études approfondies). Her final thesis in art history focused on the SÚM group in Iceland. Since 1982 she has written articles on visual art for newspapers and magazines, conducted interviews, and written texts for exhibition catalogues. From 1987 to 1995, she was one of the editors of the Nordic art magazine Siksi. She has also worked on organising exhibitions and was, for example, the curator of the Icelandic Pavilion at the Venice Biennale in 2003 and 2005 and she was one of the authors of the Icelandic Art History, published in 2011 (Volume IV). She has also participated in photography exhibitions with her own photographic works, for example in the exhibition Augnablik at the Living Art Museum in 1985 and in the exhibition Aspects of the History of Photography in Iceland 1970–1990 at the National Museum in 2012. In parallel with her work as an art historian, Laufey has been a tour guide since 1972, both in Iceland and in France. Between 2012 and 2024, Laufey, together with her husband, the architect Bernard Ropa, has held exhibitions of works by Icelandic artists in their private apartment on the 25th floor of a building in the 19th arrondissement of Paris.