María Margrét Jóhannsdóttir
María Margrét Jóhannsdóttir (f. 1982) starfar hjá menningardeild Morgunblaðsins sem blaðamaður og gagnrýnandi með áherslu á myndlist en hún er annar tveggja myndlistargagnrýnenda blaðsins. María Margrét hefur víðtæka reynslu á sviði blaðamennsku og kynningarmála og hefur m.a. starfað sem blaðamaður fyrir tímarit sem snúa að hönnun og sem einn almannatengla flugfélagsins WOW air. Þá hefur hún einnig tekið að sér fjölbreytt verkefni fyrir listasöfn sem snúa að rannsóknum og miðlun. Hún hefur einnig tekið að sér leiðsagnir og lagt t.d. sérstaka áherslu á verk Einars Jónssonar, Þorvalds Skúlasonar og Ásgríms Jónssonar. María Margrét hefur starfað sem kynningarstjóri TORG listamessu 2024 á vegum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM) sem er kynningar- og söluvettvangur íslenskrar myndlistar. Eins hefur María Margrét lokið námskeiðum á vegum Íslandsdeildar alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félags íslenskra safna og safnamanna (FÍSOS). María Margrét er með meistaragráðu í sýningarstjórnun, miðlun og sýningargerð frá Háskóla Íslands þar sem hún lagði sérstaka áherslu á að rannsaka textanotkun listasafna á sýningum. Þá er hún einnig með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum og BA próf í sálfræði og listfræði.
María Margrét Jóhannsdóttir (b.1982) is a culture journalist and art critic for the Icelandic newspaper, Morgunblaðið. She is one of the newspaper´s two art critics. María Margrét has extensive experience in journalism and public relations and has for example worked as a journalist for design magazines and in public relations for the Icelandic airline WOW air. She has also undertaken a variety of projects for art museums involving research, public relations, social media and copywriting. María Margrét has worked for the TORG art fair 2024 on behalf of The Association of Icelandic Visual Artists (SÍM), which is a promotional and sales platform for Icelandic fine art. She has also completed courses on behalf of the Icelandic section of the International Council of Museums (ICOM) and the Icelandic Museums Association (FÍSOS). María Margrét holds degrees in curation, art theory, psychology and international relations.