Ragnheiður Vignisdóttir
Ragnheiður Vignisdóttir (f. 1990) er fræðslu- og útgáfustjóri hjá Listasafni Íslands. Hún er með BA-próf í listfræði frá Háskóla Íslands með skiptinámi við Sorbonne-háskóla í París. Hún er einnig með diplómu í menningarmiðlun og meistaragráðu í ritstjórn og útgáfu frá Háskóla Íslands. Ragnheiður hefur leitt fjölmörg fræðsluverkefni, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi, og sér einnig um skipulagningu viðburða og útgáfur fyrir Listasafn Íslands. Hún er einn höfunda fræðsluefnisins Sjónarafl – þjálfun í myndlæsi sem meðal annars er notað í kennslufræðinámi og hlaut tilnefninu til Íslensku menntaverðlaunanna og til Íslensku safnaverðlaunanna árið 2024. Þá er hún einnig meðhöfundur ritrýndra greina um safnfræðslu. Ragnheiður átti frumkvæðið að stofnun Krakkaklúbbsins Krumma í Listasafni Íslands 2017 og hefur í störfum sínum lagt mikla áherslu á vönduð verkefni á sviði barnamenningar. Auk þess gegnir Ragnheiður starfi ritara í stjórn ICOM Ísland.
Ragnheiður Vignisdóttir (b. 1990) is the Head of Education and Publishing at the National Gallery of Iceland. She holds a BA degree in art history and art theory from the University of Iceland, including an exchange semester at Sorbonne University in Paris. She also holds a diploma in cultural mediation and a master’s degree in editing and publishing from the University of Iceland. Ragnheiður has led numerous educational projects, both in Iceland and internationally, and has also been responsible for organising events and publications for the National Gallery of Iceland. She is one of the authors of the educational resource Sjónarafl – Visual Literacy Training, which is used in teacher education programs and was nominated for both the Icelandic Education Awards and the Icelandic Museum Awards in 2024. She is also a co-author of peer-reviewed articles on museum education. Ragnheiður initiated the establishment of the Children’s Club Krummi at the National Gallery of Iceland in 2017 and has placed strong emphasis on high-quality projects in the field of children's culture throughout her work. In addition, Ragnheiður serves as secretary on the board of ICOM Iceland.