Sigríður Regína Sigurþórsdóttir
Sigríður Regína Sigurþórsdóttir er doktorsnemi í listfræði við Háskóla Íslands í samstarfi við Listasafn Íslands og Listaháskóla Íslands, kvikmyndafræðingur og kvikmyndavarðveislufræðingur. Hún hefur áður starfað sem safneignarfulltrúi Nýlistasafnsins og sjálfstætt sem varðveislufræðingur í tímabundnum verkefnum ásamt því að starfa sem skrifta í kvikmyndagerð. Hún er sérfræðingur í varðveislu kvikmynda og tímatengdrar myndlistar (list sem hefur tíma sem þátt á sama hátt og litur eða lögun í skúlptúr eða málverki, svo sem vídeóverk, hljóðverk, tölvuverk, gjörningar, ofl). Í doktorsnámi sínu rannsakar hún varðveislu og endur-uppsetningu slíkrar myndlistar, listamannaviðtöl og arkíf myndlistafólks með sérstaka áherslu á safneign Listasafns Íslands, myndlist Steinu og Woody Vasulka og arkíf þeirra hjóna í Vasulkastofu. Hún tekur nú þátt í að leiða viðamikið Evrópuverkefni á vegum Listasafns Íslands og er rannsóknin þáttur í því. Hún hefur flutt fyrirlestra á ráðstefnum og málþingum um ýmislegt tengt kvikmyndavarðveislu og myndlist, þar á meðal á ráðstefnu Bandaríska forvarðafélagsins (AIC), ráðstefnu félags kvikmyndavarðveislufræðinga (AMIA), Haustráðstefnu Listasafns Reykjavíkur, Farskóla FÍSOS, á Orphan Film Symposium og Hugvísindaþingi. Hún hefur kennt kvikmyndafræði, notkun arkífefnis í kvikmyndagerð, höfundarrétt og skriftustörf sem gestakennari á BA og MA stigi í kvikmynda- og hönnunardeildum LHÍ og sem stundakennari í Keili og MÁ ásamt því að þróa og kenna heimildamyndagerð fyrir 5.-7. bekk á vegum Skjaldborgar–hátíðar íslenskra heimildamynda. Sigríður er með tvær MA gráður í kvikmyndavarðveislu og kvikmyndafræði frá New York Háskóla ásamt BA í kvikmyndafræði frá HÍ. Hún er í stjórn Skjaldborgar, varastjórn Nýlistasafnsins og er fulltrúi doktorsnema í stjórn Bókmennta- og listfræðistofnunar. Frekari upplýsingar: siggaregina.is
Sigríður Regína Sigurþórsdóttir is a doctoral candidate in art theory at the University of Iceland, in collaboration with the National Gallery of Iceland and the Iceland University of the Arts. She is also a film scholar and moving image archivist. She was previously collections manager at the Living Art Museum, preservation specialist on project basis and script supervisor in film productions. She specializes in the preservation of moving images and time‑based media art. Her doctoral research focuses on the preservation and reinstallation of TBMA, artist interviews, and artists’ archives, with emphasis on the National Gallery of Iceland’s collection, Steina and Woody Vasulka, and their archive in the Vasulka Chamber. She is currently helping lead a major European project hosted by the National Gallery, within which her research forms a component. She has presented at conferences and symposia including the American Institute for Conservation, the Association of Moving Image Archivists, the Reykjavík Art Museum’s Autumn Conference, the Orphan Film Symposium, and the Humanities Conference at the University of Iceland. Sigríður has been BA and MA guest lecturer at LHÍ, part‑time instructor at Keilir/MÁ and taught 5-7th grade documentary filmmaking workshops. She holds two MA degrees in moving image archiving and preservation and cinema studies from NYU, and a BA in film theory from the University of Iceland. She is on the board of Skjaldborg, deputy board of the Living Art Museum and represents doctoral candidates on the board of the Institute of Literature and Visual Arts. More information: siggaregina.is