Sigurjón Árni Eyjólfsson
Sigurjón Árni Eyjólfsson (f. 1957) lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1984, doktorsprófi frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi árið 1991 og öðru doktorsprófi frá guðfræðideild HÍ árið 2002. Hann lauk einleikaraprófi í saxafón-leik frá djass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH árið 2016 og meistaraprófi í listfræði frá HÍ árið 2024. Sigurjón er héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og stundakennari við íslensku- og menningardeild HÍ. Hann stundar núna framhaldsnám í listfræði og kvikmyndafræði við sama skóla. Sigurjón hefur ritað eftirfarandi rit: Rechtfertigung und Schöpfung in der Theologie Werner Elerts (1994), Hver er Jesús? (1995), Guðfræði Marteins Lúthers (2000), Kristin siðfræði í sögu og samtíð (2004), Ríki og kirkja (2006), Tilvist, trú og tilgangur (2008), Anfechtung und Nachfolge (2012), Trú, von og þjóð (2014), Að ná áttum (2019), Augljóst en hulið (2020), Tíminn og trúin (2022), Abstrakrtmálverkið – Helgimynd íslenskrar menningar á 20 öld? (2025).