Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir er sýningarstjóri og listfræðingur sem starfaði hjá Myndlistarmiðstöð (2021-2024). Þar leiddi hún skipulagningu og framkvæmd á myndlistarhátíðinni Sequences og Íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum sem verkefnisstjóri alþjóðlegra verkefna. Hún er núverandi forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, þar sem hún hefur komið af stað alþjóðlegri vinnustofudvöl fyrir erlenda og innlenda listamenn í Þórsmörk í Neskaupstað. Hún var ein af aðalskipuleggjendum LungA Listahátíð ungs fólks á Austurlandi. Þórhildur Tinna fékk BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands og lauk síðan framhaldsnámi í lista- og menningarstjórnun við King’s College, London, þar sem hún einbeitti sér að sýningarstjórnun og alþjóðlegri listasögu. Þórhildur hefur víðfeðman feril að baki þar sem hún hefur öðlast yfirgripsmikla reynslu á skipulagningu, fjármögnun og framkvæmd fjölbreyttra lista og menningarviðburða.
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir is an art historian and curator whose practice centres on collaborative methodologies and site-responsive exhibition-making. Most recently, she curated the group exhibitions; In the Undergrowth for Ars Longa Contemporary Art Museum; A Seed Grown from Stone for the Association of Icelandic Visual Artists (SÍM); Unknown Benevolence, Hafnarborg’s Autumn Exhibition, which subsequently travelled to the Sláturhúsið Art Center. Þórhildur Tinna holds a BA in art theory & art history from the University of Iceland and an MA in arts & cultural management with a focus on curation from King’s College London. Her professional background spans institutional, grassroots, and festival contexts, including previous roles at the Icelandic Art Center and LungA art festival. She was involved in previous Sequences art biennial editions most recently as director in 2023. She currently serves as the Director of the Cultural Office of Fjarðabyggð.