Næstkomandi miðvikudag, þann 5. nóvember kl. 17, fer annar félagsfundur Listfræðafélagsins á þessu hausti fram á efri hæðinni á Sólon, á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Efni fundarins verður sem hér segir:
- Framhaldslíf Íslensku listasögunnar. Við viljum hefja umræðu innan félagsins um íslensku listasöguna, stöðu hennar og framtíð. Nemendur í MA-námi í listfræði við Háskóla Íslands hafa tekið að sér að koma með kveikju að umræðunni. Þau koma til með at ræða fyrstu tvö bindi Íslenskrar listasögu frá 2011 í stuttu máli. Þar er áherslan á það hvernig hún kemur þeim fyrir sjónir, með áherslu á kosti hennar og gallar fyrir íslenskt listfræðasamfélag í framtíðinn. Eftir „kveikju“ nemendanna verður almennt spjall á meðal fundargesta um þessi málefni. Ef vel tekst til verður síðar efnt til sérstakrar umræðu um síðari bindi sögunnar.
- Inntaka nýrra félaga. Nokkrir hafa sótt um aðild að félaginu undanfarið og nú þarf að bera aðild þeirra formlega upp fyrir félagsfund.